ÞRÍVÍDDARPRENTARI

Þrívíddarprentarar eru í öllum Fab Lab smiðjum landsins.

Fjölmargar gerðir þrívíddaraprentara eru í Fab Lab smiðjunum.
Prusa, Bambu og Ultimaker þrívíddarprentarar eru algengir.

Vinnufletir þeirra eru frá 190 mm til 360 mm á breidd
Algengustu efni sem notuð eru í þrívíddarprentaranum eru: PLA, PETG, TPU en einnig ABS, ASA og Nylon.

VINNUFERLI

Vinnuferli við þrívíddarprentara:
3D hönnun -> Framleiðsluhugbúnaður -> Þrívíddarprentun

HUGBÚNAÐUR

Algengur hönnunarhugbúnaður:

  • Tinkercad
  • FreeCad
  • Blender
  • Fusion 360

HUGBÚNAÐUR

Algengur hugbúnaður fyrir framleiðslu.

  • Prusa Slicer - sérstaklega fyrir Prusa þrívíddar-prentara en einnig fleiri
  • Bambu Studio  - sérstaklega fyrir Bambu Lab þrívíddar- prentara.
  • Cura - sérstaklega fyrir Ultimaker þrívídar-prentara.

 

Algengt ferli:

  • Opnaðu þrívíddarskrána þína t.d. .stl eða .obj skrá.
  • Athugaðu hvort módelið sé í réttum skala.
  • Staðsettu módelið.
  • Settu réttar stillingar fyrir prentun og athugaðu hvort prenta þurfi stuðning.
  • Skoðaðu preview, hvernig prentið kemur út.
  • Export ->Flyttu skrána yfir í þrívíddarprentarann.
  • Og prentaðu út.

SKRÁARSNIÐ

Algeng skráarsnið:

  • .stl
  • .obj
  • .step
  • .3mf
  • Ekki snerta prent stútana (e. extruders) ef þeir eru heitir.
  • Ekki snerta heitt borðið.
  • Ekki setja hendur í 3D prentarann þegar hann er  að prenta.
  • Ef þú ert ekki viss - > þá skaltu spyrja.
prusaxl
prusamk39
prusaminiplus1400px
bambux1400px
Ultimaker2Extended
ico3dprentari
is_ISÍslenska