Tinkercad er þrívíddar CAD forrit frá Autodesk sem er einfalt í notkun og hentar m.a. vel til hönnunar á litlum einföldum hlutum til þess að þrívíddarprenta.
Sketchup er þrívíddar forrit frá Trimble og er tiltölulega einfalt í notkun og hentar m.a. vel til að gera skissur í þrívídd af hlutum, byggingum eða svæðum eða öðrum hlutum sem til stendur að hanna.
Fusion 360 er öflugt þrívíddarvinnslu CAD, CAM og CAE forrit. Forritið hentar vel fyrir smellismíðagerð og hentar sérlega vel fyrir s.k. parametric design.
Blender er þrívíddarforrit sem má nota á fjölbreyttan hátt m.a. til teiknimyndagerðar eða gerðar tölvuleikja og hentar það vel með leikjavélum eins og t.d. Unity
Sculptris frá Pixologic er tiltölulega einfalt forrit í notkun og er notað í Fab Lab smiðjunum til þess að skulpta einfalda karaktera eða hluti líkt og að móta leir.